Mikil verðmæti leka úr landi þegar óunnið hráefni er flutt út. Þessir milljarðar sem hér eru til umræðu tilheyra eingöngu ferskum slægðum þorski með haus. Það má örugglega finna miklu fleiri milljarða ef aðrar tegundir eru skoðaðar með sama hætti.

Þúsundir tonna af óunnu hráefni eru flutt úr landi mest er talað um þorskinn en nánast allur eldislaxinn fer t.d. óunninn úr landi þ.e. kældur og slægður með haus og ansi margar aðrar tegundir fara sömu leið.

Það er sem sagt mikið pláss fyrir vöruþróun, nýsköpun og markaðssókn.

Árið 2025 var útflutningur á ferskum slægðum þorski með haus ríflega tvöfalt meiri en árið 2002. Var um 5.300 tonn árið 2002 og um 12.000 tonn 2025 en þetta er aukning upp á 130%.

Það er í raun svolítið sérstakt að þessi þróun eigi sér stað jafnhliða því að tæknivæðing og afkastageta vinnslunnar hefur batnað umtalsvert á sama tímabili.

Þorskaflinn 2025 var 216.621 tonn og þetta sama ár voru flutt út um 123.000 tonn af þorskafurðum.

Í samhengi við þessar tölur þá fer um 5,5% af þorskaflanum óunninn úr landi. Það er alveg tímabært að velta því fyrir sé hvort ekki sé verið að missa af miklum verðmætum.

Unnar afurðir skila að sjálfsögðu meiri verðmætum, aukin vinnsla skilar auknum tekjum til samfélags og einstaklinga. Aukaafurðir skila bættri nýtingu og verðmætum í formi verðmætra afurða og aukinna tekna.

Fyrir allmörgum árum síðan útbjó ég til þessa mynd sem á að sýna helstu nýtingartölur við vinnslu þorsks.

Út frá forsendum nýtingarmyndarinnar hér fyrir ofan má gera ráð fyrir að heill slægður þorskur með haus gæti gefið af sér eftirfarandi afurðir:

  1. Hertir hausar. Á myndinni sem sýnir helstu nýtingartölurnar þá er haus með klumbu um 30% af slægðum þorski. Ef Þurrkhandbókin er skoðuð þá má búast við um 23% nýtingu við þurrkun hausa. Sem sagt þá má búast við 7% af hertum þorskhausum með tollskrárnúmerið 0305 8211.  Meðaltals fob-verð 2025 var 492 kr/kg.
  2. Hryggir. Eftir flökun verða til hryggir og er gert ráð fyrir að þeir séu 18% og það sama gildir um hryggina og hausana að þeir eru gjarnan þurrkaðir. Ég er ekki alveg viss um í hvaða tollskrárnúmeri þessir hryggir lenda. Í þessu tilviki ætla ég að veðja á „0305 5109-Annar þurrkaður eða saltaður þorskur“. Nýtingin eftir þurrkun er sambærileg við þurrkun á hausum svo það má búast við að fá um 4kg að þurrkuðum hryggjum úr 100kg af slægðum þorski. Meðaltals fob-verð 2025 var 475 kr/kg.
  3. Roð. Næst er það roðið sem er u.þ.b. 4% af heilum slægðum þorsk. Tollskráin er ekki mjög upplýsandi um hvar roðið á heima. Ég fann „41069201-Krustuð fryst fiskroð“ sem er alls ekki góð skilgreining á frystu fiskroði. Þeir sem vita hvað „krustuð“ þýðir mega gjarnan hafa samband. Meðaltals fob-verð 2025 var 139 kr/kg.
  4. Marningur. Við snyrtingu flaka verður til beingarður, þunnildi og smærri afskurður. Til að einfalda þessa yfirferð þá set ég þetta allt í gegnum marningsvélina og til verða um 5kg af frystum marningi „03049512-Frystur þorskmarningur“. Meðaltals fob-verð 2025 var 410 kr/kg.
  5. Flök og flakabitar. Flök og flakabitar eru alls um 43% af slægðum þorski. Til að hafa þetta einfalt þá geri ég ráð fyrir að helmingurinn eða 21,5kg lendi í „03047131-Fryst, roðflett þorskflök í bitum“ þar sem meðaltals fob-verð 2025 var 1.563 kr/kg.og hinn helmingurinn verði fluttur út sem „03044432-Fersk, roðflett þorskflök í bitum“ þar sem meðaltals fob-verð 2025 var 2.300 kr/kg.

Ef þessa forsendur eru notaðar þá kemur það í ljós að framleiða hefði mátt 7.560 tonn af þessum afurðum í stað þess að flytja út 12.000 tonn af slægðum þorski. Heildarverðmæti (fob) þessara afurða gæti verið um það bil 11 milljarðar sem er tæpum þremur milljörðum meira en verðmæti óunna hráefnisins sem flutt var út.

Sem sagt um þrír milljarðar íslenskra króna láku úr landi með þessum óunna þorski árið 2025.

Ef samtalan fyrir árin 2021 til 2025 eru skoðuð með sömu gleraugum þá eru þetta verðmæti upp á 15 milljarða sem leka úr landi á fimm ára tímabili.

Þá er eftir að leggja mat á allt hitt hráefnið sem fer úr landi óunnið.

Ég læt öðrum eftir að setja þessar tölur í samhengi en mig minnir að nýtt skip sem bættist í flotann á þessu ári hafi kostað ríflega 5,5 milljarða.

Tækifæri til nýsköpunar, vöruþróunar og markaðssóknar er svo sannarlega fyrir hendi.

Það er ekki eins og að nauðsynlegt sé að fjárfesta fyrir milljarða til að vinna þennan fisk flest allt sem til þarf er nú þegar til staðar.

Fiskvinnslur hér á landi eru margar hverjar búnar að fjárfesta fyrir milljarða á undanförnum árum.

Það má vissulega halda því fram að verðmæti leki úr landi með þessum „óunna“ fiski en það má örugglega líka fullyrða hið gagnstæða og segja að þetta séu mikilvæg og verðmæt viðskipti.

Alla vega er hægt að deila um þetta, hafa hátt og grípa til allskonar raka með og á móti. En þá er betra að hafa rétt og áreiðanleg gögn við höndina.

Tollskráin er langt í frá tæmandi gagnagrunnur fyrir þann fjölda afurða og vara sem unnar eru í íslenskum sjávarútvegi. Margar ólíkar vörur eru að lenda í sama tollskrárnúmeri og til að bæta gráu ofan á svart þá eru útflytjendur að skrá samskonar vörur með mismunandi hætti.

Ég þreytist ekki á að halda því fram að tollskráin okkar er afskaplega illa unnin og hefur að geyma allskonar misskilning og jafnvel algjört bull svo ekki sé nú fastara að orði kveðið.

En þetta eru einu upplýsingarnar sem hægt er að nálgast um verðmæti útfluttra sjávarafurða. Sem gerir það að verkum að útilokað að er fylgjast með eða greina þróun og nýsköpun í framleiðslu sjávarafurða.