Snyrting flaka. Þessi tvö hugtök “V-cut og J-cut” vísa til þess hvernig beingarður er skorinn úr heilum flökum.
V-skurður
V-cut
Beingarður hefur verið skorinn frá með eins nettum skurði og hægt er og þunnildið fylgir flakinu mismunandi mikið snyrt, mjög algengt er að snyrta slægingarsárið sbr línu A á myndinni hér fyrir neðan, aðrar útfærslur eru einnig til.
J-skurður
J-cut
Þessi lýsing á við þegar allt þunnildi hefur verið skorið frá með beingarðinum.